Til umsagnar
12.–22.11.2021
Í vinnslu
23.11.–12.12.2021
Samráði lokið
13.12.2021
Mál nr. S-217/2021
Birt: 12.11.2021
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Engar umsagnir komu um málið og var það lagt fram á Alþingi 9. desember 2021
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum (framlenging bráðabirgðaheimilda).
Hinn 20. apríl 2020 tóku gildi breytingarlög nr. 32/2020 sem heimiluðu framlengingu fresta og rafræna meðferð mála hjá sýslumönnum, dómstólum o.fl., í því skyni að koma í veg fyrir réttarspjöll af völdum heimsfaraldurs kórónuveiru og draga úr neikvæðum áhrifum faraldursins. Með frumvarpinu var meðal annars samþykkt að bæta ákvæðum til bráðabirgða við lög um meðferð einkamála, nr. 91/1991, lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008, lög um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991 og erfðalög nr. 8/1962. Heimildirnar hafa reynst vel og ákveðið var að framlengja gildistíma þeirra með frumvarpi því er varð að lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru (framlenging bráðabirgðaheimilda), nr. 121/2020. Með lögunum voru heimildir sýslumannsembætta, lögreglu og dómstóla til þess að beita rafrænum lausnum og fjarfundabúnaði í ákveðnum tilvikum framlengdar til ársloka 2021. Í ljósi þess að áhrifa heimsfaraldurs kórónuveirunnar gætir enn í dag, er talið rétt að framlengja bráðabirgðaheimildirnar á ný þannig að tími gefist til að taka ákvæði laganna til frekari endurskoðunar. Með frumvarpi þessu er lagt til að framangreindar bráðabirgðaheimildir verði framlengdar til ársloka 2024.
Þá samþykkti Alþingi þann 27. febrúar 2017 bráðabirgðaheimild þess efnis að fram til 1. janúar 2022 geti Landsréttur haft aðsetur utan Reykjavíkur, sbr. 3. gr. laga nr. 10/2017. Frá því að Landsréttur tók til starfa hefur hann haft aðsetur í Kópavogi og þar sem enn er unnið í húsnæðismálum dómstólsins er lagt til að umrædd heimild verði framlengd um önnur fimm ár, eða fram til 1. janúar 2027.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Dómsmálaráðuneyti
dmr@dmr.is