Til umsagnar
8.–22.11.2021
Í vinnslu
23.–22.11.2021
Samráði lokið
23.11.2021
Mál nr. S-214/2021
Birt: 8.11.2021
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Engin umsögn barst.
Drög að frumvarpi sem samið er í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, þar sem lagðar eru til breytingar á lögum um bifreiðagjald, lögum um olíu- og kílómetragjald og lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.
Tilefni frumvarpsins er breyting á aðkomu faggiltra skoðunarstöðva og Samgöngustofu að innheimtu gjalda þar sem samningar fjármála- og efnahagsráðuneytisins við skoðunarstöðvar og Samgöngustofu um greiðslu þóknana vegna innheimtu gjalda voru felldir úr gildi í upphafi árs 2021. Samningarnir höfðu verið í gildi allt frá árinu 1998. Þeir voru taldir barn síns tíma og ekki í samræmi við sjónarmið að baki lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, og lög um innheimtu opinberra gjalda, nr. 150/2019, og markmið ríkisstjórnarinnar síðustu ár um skilvirkni innheimtu opinberra skatta og gjalda.
Ráðuneytið hefur átt í miklu samráði við Samtök verslunar og þjónustu fyrir hönd skoðunarstöðva sem og Samgöngustofu, Fjársýslu ríkisins og Skattinn enda hafa ýmis álitaefni vaknað í kringum framkvæmd innheimtu skatta á ökutæki. Þannig hefur ákall Samgöngustofu og skoðunarstöðva verið skýrt um að fella úr lögum allar skyldur skoðunarstöðva er snúa að eftirfylgni og aðkomu að innheimtu skatta á ökutæki. Slíkt myndi hafa einföldun í för með sér fyrir skoðunarstofur, Samgöngustofu og eigendur bifreiða. Með frumvarpi þessu er reynt að mæta framangreindum sjónarmiðum sem mest má án þess að innheimtuárangri verði stefnt í voða.
Ath. að uppfærð skjöl voru sett inn þann 11. nóvember til samráðs. Ekki er lengur í drögum að frumvarpi að finna tillögu að því að fella brott 2. mgr. 5. gr. laga um bifreiðagjald, þar sem slíkt hefði mögulega neikvæðar afleiðingar fyrir kaupanda ökutækja ef seljandi greiðir ekki álagt bifreiðagjald.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
postur@fjr.is