Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 5.–19.11.2021

2

Í vinnslu

  • 20.11.2021–20.1.2022

3

Samráði lokið

  • 21.1.2022

Mál nr. S-210/2021

Birt: 5.11.2021

Fjöldi umsagna: 0

Áform um lagasetningu

Innviðaráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Aform um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust við áform um lagasetningu. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna, nr. 33/1991, eru kynnt til umsagnar á Samráðsgátt stjórnvalda frá 21. janúar til 4. febrúar 2022.

Málsefni

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar áform um breytingu á lögum um Slysavarnaskóla sjómanna, nr. 33/1991. Með frumvarpinu verður stefnt að breytingum þannig að lögin endurspegli þá þróun sem orðið hefur á rekstri skólans frá gildistöku laganna.

Nánari upplýsingar

Samkvæmt lögum um Slysavarnaskóla sjómanna, nr. 33/1991 skal skólinn halda námskeið fyrir starfandi og verðandi sjómenn um öryggis- og björgunarmál á helstu útgerðarstöðum landsins og annast öryggis- og slysavarnarfræðslu fyrir nemendur í skipstjórnar- og vélstjórnarnámi.

Lög þessi eru að meginstefnu til óbreytt frá því þau öðluðust gildi 1991. Talin er þörf á uppfærslu á lögunum þannig að þau endurspegli þróun á rekstri skólans. Er þar átt við hlutverk skólanefndar og að um rekstur skólans sé nú ávallt gerður þjónustusamnngur milli aðila. Þá er þörf á að heimila að Slysavarnafélagið Landsbjörg megi reka Slysavarnaskóla sjómanna í sérstöku félagi sem er aðskilið frá öðrum rekstri félagsins.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa samgangna

srn@srn.is