Til umsagnar
20.5.–10.6.2021
Í vinnslu
11.–29.6.2021
Samráði lokið
30.6.2021
Mál nr. S-116/2021
Birt: 20.5.2021
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust. Drög að lagafrumvarpi verða birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um evrópska áhættufjármagnssjóði og evrópska félagslega framtakssjóði sem mun innleiða reglugerðir (ESB) 345/2013 og 346/2013 (EuVECA- og EuSEF-reglugerðir).
Markmiðið með reglugerðunum er að beina fjármunum einkafjárfesta til lítilla og meðalstórra fyrirtækja og með þeim hætti auka atvinnutækifæri og vöxt innan Evrópusambandsins.
Meginefni frumvarpsins verður lögfesting reglugerðanna og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, svo sem um hvernig eftirlit fari fram, viðurlagaákvæði, og heimildir til setningar stjórnvaldsfyrirmæla.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
postur@fjr.is