Til umsagnar
23.12.2020–6.1.2021
Í vinnslu
7.1.–27.5.2021
Samráði lokið
28.5.2021
Mál nr. S-280/2020
Birt: 23.12.2020
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla
Ein athugasemd vegna áformanna barst frá Samtökum verslunar og þjónustu sem gerði þó ekki athugasemdir við efnisinnihald fyrirhugaðs frumvarps heldur var óskað eftir því að frumvarpið innihéldi einnig breytingu á saknæmisskilyrði 3. mgr. 172. gr. tollalaga varðandi aðkomu tollmiðlara að brotum á ákvæðum laganna um upplýsingagjöf. Að mati ráðuneytisins gaf umsögnin ekki tilefni til sérstakra viðbragða
Áformað er að breyta tollalögum, nr. 88/2005, með það að markmiði að skýra heimildir tollyfirvalda til að vinna upplýsingar ásamt því að styrkja eftirlit og varnir tollyfirvalda gegn peningaþvætti og fjármögnun til hryðjuverka.
Með frumvarpinu verða lagðar til breytingar á tollalögum, nr. 88/2005, með það að markmiði að kveða skýrar á um heimildir tollyfirvalda til að vinna upplýsingar. Fullnægjandi heimildir til vinnslu upplýsinga, þ. á. m. persónuupplýsinga, eru forsenda þess að tollyfirvöld geti tekist á við verkefni sín með nútímalegum hætti, m.a. með áhættustjórnun í samræmi við skilgreint hlutverk sitt og alþjóðlegar skuldbindingar. Að auki munu verða lagðar til breytingar á tollalögum, nr. 88/2005, með það að markmiði að styrkja eftirlit og varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun til hryðjuverka með því að kveða á um heimild tollyfirvalda til að leita í innrituðum farangri.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Engin skráður umsjónaraðili.