Til umsagnar
10.12.2020–6.1.2021
Í vinnslu
7.1.–3.11.2021
Samráði lokið
4.11.2021
Mál nr. S-264/2020
Birt: 10.12.2020
Fjöldi umsagna: 1
Áform um lagasetningu
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Ein umsögn barst vegna málsins í samráðsgáttina. Fyrirhugað er að birta drög að frumvarpi til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda í lok árs 2021.
Áformað er að breyta tilteknum ákvæðum laga nr. 140/2018 varðandi sýndareignir og kanna jafnframt hvort tilefni sé til þess að gera afmarkaðar breytingar á lögunum með hliðsjón af þeirri reynslu sem orðin er af framkvæmd þeirra.
Með aðild sinni að FATF hefur Ísland skuldbundið sig til þess að laga löggjöf sína varðandi aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka að tilmælum samtakanna. Á árinu 2019 var ákvæðum tilmæla FATF varðandi sýndareignir breytt og í kjölfarið liggur fyrir að uppfæra þarf ákveðin ákvæði laga nr. 140/2018.
Á vormánuðum 2020 var lagt fram af hálfu dómsmálaráðherra frumvarp til breytinga á lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018, sem ætlað var að ljúka innleiðingu á svonefndri fimmtu peningaþvættistilskipun ESB. Frumvarpið varð að lögum í júní 2020. Í umsögnum við það frumvarp komu fram ýmsar athugasemdir og ábendingar sem byggja á þeirri reynslu sem orðin er af framkvæmd nefndra laga nr. 140/2018. Er þar einkum um að ræða athugasemdir og ábendingar frá þeim stjórnvöldum sem sinna eftirliti samkvæmt lögunum.
Samhliða þeim breytingum sem fyrirhugað er að gera á þeim ákvæðum laga nr. 140/2018 sem varða sýndarfé, er fyrirhugað að fara yfir þær ábendingar og athugasemdir sem borist hafa vegna reynslu af framkvæmd laganna og kanna hvort tilefni sé til þess að gera frekari breytingar á lögum nr. 140/2018 heldur en aðeins þær sem varða sýndarfé.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Dómsmálaráðuneytið
postur@dmr.is