Til umsagnar
25.8.–9.9.2020
Í vinnslu
10.9.2020–4.11.2021
Samráði lokið
5.11.2021
Mál nr. S-158/2020
Birt: 25.8.2020
Fjöldi umsagna: 6
Áform um lagasetningu
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Sjá meðfylgjandi niðurstöðuskjal.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um Póst- og fjarskiptastofnun.
Áformuð er heildarendurskoðun á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun. Tilgangur frumvarps er að endurskoða starfsumhverfi Póst- og fjarskiptastofnunar, með tilliti til fyrirsjáanlegra og áorðinna breytinga á verkefnum stofnunarinnar. Sá lagarammi sem stofnunin vinnur eftir hefur tekið miklum breytingum að undanförnu og er það mat ráðuneytisins að nauðsynlegt sé að líta yfir sviðið og skoða heildstætt þær breytingar sem þarf að gera vegna nýrra laga og hvernig megi tryggja að stofnunin þjónusti samfélagið sem best til framtíðar. Til stendur að greina verkefni stofnunarinnar og leggja fram tillögur um úrbætur á grundvelli greiningarvinnunnar. Stofnanir hins opinbera verða að endurspegla lagaumhverfi og þarfir samfélagsins á hverjum tíma og vera má að einstök verkefni verði flutt til á milli stofnana, ef niðurstöður greiningarvinnu gefa tilefni til.
Ráðuneytið óskar eftir umsögnum frá haghöfum um fyrirliggjandi áform.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa stafrænna samskipta
srn@srn.is