Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 20.8.–10.9.2020

2

Í vinnslu

  • 11.2020–12.9.2021

3

Samráði lokið

  • 13.9.2021

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-150/2020

Birt: 20.8.2020

Fjöldi umsagna: 1

Áform um lagasetningu

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Markaðseftirlit og neytendamál

Frumvarp til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta (PRIIP).

Niðurstöður

Málinu lauk með framlagningu frumvarps til laga um lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta, sem varð svo að lögum nr. 55/2021.

Málsefni

Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til laga um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta til innleiðingar á reglugerð ESB 2014/1286.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið mun fela í sér innleiðingu í íslenskan rétt á ákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 1286/2014 um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarafurðir fyrir almenna fjárfesta (PRIIP-reglugerðin). Með reglugerðinni er í fyrsta sinn settur samræmdur rammi um lykilupplýsingaskjöl fyrir pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarvörur fyrir almenna fjárfesta. Lögð er sú skylda á herðar þeirra sem veita ráðgjöf um eða selja pakkaðar og vátryggingatengdar fjárfestingarvörur fyrir almenna fjárfesta að semja og gera almennum fjárfestum tiltækt lykilupplýsingaskjal (e. Key Information Document, KID). Markmiðið er að auðvelda almennum fjárfestum að bera saman lykilupplýsingar ólíkra vara og skilja séreinkenni þeirra, meðfylgjandi áhættu og kostnað.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa fjármálamarkaðar

benedikt.hallgrimsson@fjr.is