Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 26.2.–8.3.2020

2

Í vinnslu

  • 9.3.–22.6.2020

3

Samráði lokið

  • 23.6.2020

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-51/2020

Birt: 26.2.2020

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 (atvinnurekstrarbann).

Niðurstöður

Frumvarpið lagt fram á Alþingi 15. maí 2020 https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=150&mnr=815

Málsefni

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991 (atvinnurekstrarbann). Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti í því skyni að sporna við misnotkun á hlutafélagaforminu og kennitöluflakki í atvinnurekst

Nánari upplýsingar

Með frumvarpi þessu er lagt til að það nýmæli að heimilt verði að úrskurða þann sem ekki telst hæfur til að stýra hlutafélagi vegna skaðlegra eða óverjandi viðskiptahátt við stjórnun félag í atvinnurekstrarbann sem að meginreglu vari í þrjú ár. Í slíku banni felst nánar til tekið að þeim sem því sætir er óheimilt að stjórna félagi sem rekið er með takmarkaðri ábyrgð og fara með prókúru eða annað umboð slíks félags. Í því sambandi er rétt að geta að lagt er til að atvinnurekstrarbann geti verið lagt til á þann sem „komið hefur að stjórnun félags“ á síðustu 18 mánuðum fyrir frestdag en undir það geta fallið svonefndir skuggastjórnendur. Með því er átt við aðila sem starfar í raun sem stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri félags í skilningi hlutafélagalaga án þess að vera formlega skráður sem slíkur.

Mikilvægt er að horfa til þess grundvallaratriðis að tilgangur atvinnurekstrarbanns er ekki refsing heldur að vernda almenning og samfélagið í heild sinni fyrir misnotkun á hlutafélagaforminu. Með öðrum orðum þá eru ákvæði frumvarpsins samin með undirliggjandi almannahagsmuni að leiðarljósi. Að því sögðu er ljóst að atvinnurekstrarbann er íþyngjandi úrræði og því mikilvægt að því verði ekki beitt nema ástæða sé til og að ákvörðun þar að lútandi byggist á heildarmati á öllum aðstæðum í samræmi við þau sjónarmið sem sett eru fram í frumvarpinu. Sérstaklega er mikilvægt að árétta í því sambandi einungis er ráðgert að atvinnurekstrarbanni verði beitt vegna alvarlegri tilvika og að ekki sé þrengt að frumkvöðlastarfsemi eða dregið úr hvata einstaklinga til þess að taka þátt í atvinnurekstri. Er rétt að hafa í huga að flest félög með takmarkaðri ábyrgð eru rekin í góðri trú og tekin til gjaldþrotaskipta af ástæðum sem ekki verður við ráðið, t.d. vegna þess að ekki reyndist rekstrargrundvöllur fyrir starfseminni. Í slíkum tilvikum stendur ekki ásetningur stjórnenda og annarra þeirra sem hafa stýrt félagi til annars en að standa við lagalegar skuldbindingar eins og hægt er og að ráðstafa eignum eða andvirði þeirra til greiðslu skulda eftir reglum gjaldþrotaskiptalaga. Þegar kennitöluflakk á sér stað gegnir öðru máli. Annars vegar getur verið til staðar ásetningur frá upphafi til að fara á svig við eða gegn lagareglum frá upphafi. Þá eru gjarnan litlar eða engar eignir í félagi frá upphafi og tilgangur fyrst og fremst að misnota hlutafélagformið. Þetta er alvarlegusta tegund kennitöluflakks. Hins vegar getur verið um það að ræða að félag í greiðsluerfiðleikum er rekið í þrot og eignir færðar að hluta eða að öllu leyti í nýtt félag á undirverði eða án endurgjalds, en um það finnast dæmi úr íslenskri réttarframkvæmd. Hið nýstofnaða félag er þá gjarnan starfrækt undir sama nafni og eldra félagið líkt og engin breyting hafi orðið. Þannig heldur reksturinn áfram í nýju félagi með sama eða svipuðu nafni, en skuldir eldra félagsins eru skildar eftir í eldra félaginu sem síðar er tekið til gjaldþrotaskipta og þar sem kröfuhafar sitja uppi með tjónið. Það eru síðastnefndu tilvikin sem nauðsynlegt er að tryggja almannhagsmuni fyrir og miða ákvæði frumvarpsins að því.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar að loknum umsagnarfresti. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Dómsmálaráðuneytið

dmr@dmr.is