Til umsagnar
25.2.–3.3.2020
Í vinnslu
4.3.–1.12.2020
Samráði lokið
2.12.2020
Mál nr. S-50/2020
Birt: 25.2.2020
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Dómsmálaráðuneytið
Almanna- og réttaröryggi
Engar umsagnir bárust við frumvarpið í samráðsgátt. Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi 11. nóvember 2020. Vísað er til 5. kafla greinargerðar frumvarpsins (samráðskafla).
Um er að ræða drög að frumvarpi til nýrra laga um Schengen upplýsingakerfið á Íslandi til innleiðingar á þremur reglugerðum Evrópusambandsins: reglugerð (EB) nr. 2018/1860, (EB) nr. 2018/1861 og (EB) nr. 2018/1862 um Schengen-upplýsingakerfið.
Með frumvarpi þessu er lagt til að sett verði ný lög um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi í stað frumvarps til breytinga á gildandi lögum um Schengen upplýsingakerfið á Íslandi nr. 16/2000, enda eru breytingarnar sem lagt er til að verði innleiddar með frumvarpi þessu umfangsmiklar. Þá ber að taka tillit til þess að Schengen-upplýsingakerfið fjallar um viðkvæmar persónuupplýsingar og ákvarðanir sem varða réttindi einstaklinga sem ber að kveða skýrt á um í lögum. Gildandi lög eru frá árinu 2000 og því komin nokkuð til ára sinna, ekki hvað síst ef horft er til þess að þau varða tölvukerfi. Um er að ræða nauðsynlegar breytingar til að innleiða þrjár gerðir Evrópusambandsins; reglugerð (EB) nr. 2018/1860 um notkun Schengen-upplýsingakerfisins við brottvísanir útlendinga í ólögmætri dvöl á Schengen-svæðinu, reglugerð (EB) nr. 2018/1861 um notkun Schengen-upplýsingakerfisins við landamæraeftirlit og reglugerð (EB) nr. 2018/1862 um notkun Schengen-upplýsingakerfisins við lögreglu- og dómsmálasamvinnu. Gerðirnar voru birtar í stjórnartíðindum ESB þann 28. nóvember 2018 og koma í stað þriggja annarra gerða sem áður mynduðu lagagrunn Schengen- upplýsingakerfisins en falla nú úr gildi. Innleiðing gerðanna er liður í alþjóðlegum skuldbindingum Íslands sem þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Breytingar á Schengen-upplýsingakerfinu, sem gerðirnar þrjár fela í sér, ber einnig að skoða með hliðsjón af öðrum stórum verkefnum á vettvangi Schengen-samstarfsins m.a. um þróun og starfsemi komu- og brottfararkerfis sem á að taka í gagnið árið 2021 og evrópskt kerfi um ferðaheimild árið 2022. Breytingar á Schengen-upplýsingakerfinu, er þannig mikilvægur hluti af stærri mynd í upplýsingatæknimálum sem hafa verið til umræðu og í undirbúningi um langt skeið og munu komast til framkvæmda á næstu misserum.
Í gerðunum þremur sem hér er lagt til að verði innleiddar er kveðið á um, með mun ítarlegri hætti en í núgildandi lögum, um starfsemi Schengen-upplýsingakerfisins og notkun þess ásamt því sem ábyrgð kerfisins er skilgreind. Þá er kveðið skýrt á um hvaða tegundir upplýsinga skrá má í kerfið, í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru skráðar og flett upp auk þess sem grunnviðmið um skráningu eru sett. Enn fremur er kveðið á um skýrar reglur varðandi eyðingu upplýsinga úr kerfinu, hvaða stjórnvöld hafa heimild til aðgangs að upplýsingum í kerfinu og til hvaða verkefna, ásamt notkun lífkennaupplýsinga.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Dómsmálaráðuneytið
postur@dmr.is