Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 25.2.–3.3.2020

2

Í vinnslu

  • 4.3.–24.8.2020

3

Samráði lokið

  • 25.8.2020

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-49/2020

Birt: 25.2.2020

Fjöldi umsagna: 1

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, lögum um Kristnisjóð, lögum um sóknargjöld og lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu

Niðurstöður

Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi og samþykkt sem lög nr. 95/2020, birt í Stjórnartíðindum 22. júlí 2020 og tóku gildi 23. júlí 2020 https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=6a5d82fa-310b-4858-bd94-59a45b4d83c4

Málsefni

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, lögum um Kristnisjóð, lögum um sóknargjöld og lögum um kirkjugarða.

Nánari upplýsingar

Tilefni frumvarps þessa er viðbótarsamningur íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar, sem undirritaður var 6. september 2019, um endurskoðun á svokölluðu kirkjujarðasamkomulagi. Með samningnum er m.a. stefnt að auknu sjálfstæði þjóðkirkjunnar í fjármálum og starfsmannamálum. Samkvæmt 7. gr. viðbótarsamningsins er dómsmálaráðherra falið að leggja fram frumvarp á Alþingi um breytingar á lögum svo tiltekin efnisatriði samningsins öðlist lagagildi. Í samræmi við samkomulagið voru samþykkt lög, nr. 153/2019, um breytingu á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins vegna ákvæða samningsins um að þjóðkirkjan skyldi annast launagreiðslur alls starfsfólks síns frá 1. janúar 2020. Eftir stóð að samþykkja m.a. þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpi því sem hér er kynnt.

Helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru:

Lokamálsliður 31. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997, falli brott, en hann fjallar um að héraðsnefnd fari með stjórn héraðssjóðs. Tillagan byggir á því að framvegis fái þjóðkirkjan árlegt framlag í stað framlaga sem runnu til sjóða kirkjunnar og því þurfi ekki að tilgreina þessa sjóði lengur í lögum. Þar sem einnig eru ákvæði um héraðssjóði í III. kafla laga um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987, er talið rétt að leggja til að sá kafli falli brott.

Lagt er til að II. kafli laga um Kristnisjóð o.fl., nr. 35/1970, sem fjallar um þann sjóð, falli brott og II. kafli laga um sóknargjöld o.fl., nr. 91/1987, sem er um Jöfnunarsjóð sókna, en þær breytingar leiða sömuleiðis af ákvæðum samningsins um að þjóðkirkjan fái árlega greiðslu í stað sérstakra greiðslna sem áður tilheyrðu sjóðum kirkjunnar. Af sömu ástæðu er lagt til í frumvarpinu að lög um kirkjumálasjóð, nr. 138/1993, falli brott.

Á grundveli viljayfirlýsingar sem fylgdi samkomulaginu er síðan lagt til að brott falli ákvæði úr 2. mgr. 10. gr. laga um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993, um að kirkjugarðsstjórn beri kostnað af prestþjónustu vegna útfara, en þann kostnað hafa þær borið frá gildistöku laga nr. 36/1993.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Dómsmálaráðuneytið

postur@dmr.is