Til umsagnar
17.12.2019–17.1.2020
Í vinnslu
18.1.–18.8.2020
Samráði lokið
19.8.2020
Mál nr. S-314/2019
Birt: 18.12.2019
Fjöldi umsagna: 3
Drög að reglugerð
Matvælaráðuneytið
Sjávarútvegur og fiskeldi
Alls bárust þrjár athugasemdir við drög að reglugerð um fiskeldissjóð. Í 6. mgr. 7. gr. laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð nr. 89/2019, segir að ráðherra sé heimilt með reglugerð að setja nánari ákvæði um starfsemi fiskeldissjóðsins, þ.m.t. um málsmeðferð og úthlutun úr sjóðnum, að fenginni tillögu stjórnar. Í samræmi við framangreint hefur verið ákveðið að bíða með að vinna úr athugasemdum og gefa út reglugerð þar til stjórn fiskeldissjóðs hefur verið skipuð.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur birt til umsagnar drög að reglugerð um fiskeldissjóð. Með lögum nr. 89/2019, um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð er kveðið á um stofnun sjálfstæðs opinbers sjóð - fiskeldissjóðs. Í drögum að reglugerð um fiskeldissjóð er m.a. kveðið á um fyrirkomulag vegna verkefna sjóðsins, mat á umsóknum og framkvæmd úthlutunar.

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti