Til umsagnar
24.9.–9.10.2019
Í vinnslu
10.10.2019–1.1.2020
Samráði lokið
2.1.2020
Mál nr. S-235/2019
Birt: 24.9.2019
Fjöldi umsagna: 2
Drög að frumvarpi til laga
Atvinnuvegaráðuneytið
Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar
Eftir að samráði lauk var ákveðið að leggja frumvarpið ekki fyrir Alþingi.
Frumvarpið kveður á um breytingu á lögum um ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi. Lögin eru heilstæður rammi utan um hvaða ívilnanir stjórnvöldum er heimilt að veita vegna nýfjárfestinga á Íslandi. Breytingarnar eru tilkomnar vegna athugsemda frá Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og Ríkisendurskoðunar.
Frumvarp þetta kveður á um breytingu á lögum, nr. 41/2015, um ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi. Lög sem eru heildstæð lagasetning sem er ætlað að mynda ramma utan um hvaða ívilnanir stjórnvöldum, og eftir atvikum sveitarfélögum, er heimilt að veita vegna nýfjárfestinga á Íslandi. Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) gerði athugsemd við núgildandi lög sem og Ríkisendurskoðunar. Lagafrumvarp þetta tekur til allra athugasemda ESA og er að hluta til sett fram til að koma til móts við þær. Ríkisendurskoðun gaf út stjórnsýsluúttekt sem bar heitið; Kísilverksmiðja Sameinaðs Sílikons hf. Aðkoma og eftirlit stjórnvalda. Var þeirri skýrslu skilað til Alþingis í maí 2018. Frumvarpinu er ætlað að koma til móts við þær athugasemdir sem eru settar fram þar. Í frumvarpinu er reglugerðarheimild ráðherra rýmkuð til að tengja veitingu ívilnana við ákveðnar stefnu stjórnvalda.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
postur@anr.is