Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 26.8.–9.9.2019

2

Í vinnslu

  • 10.9.2019–14.1.2020

3

Samráði lokið

  • 15.1.2020

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-210/2019

Birt: 26.8.2019

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Atvinnuvegaráðuneytið

Landbúnaður

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um matvæli, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, lögum um sjávarafurðir og lögum um slátrun og sláturafurðir

Niðurstöður

Drög að frumvarpinu voru sett á samráðsgátt Stjórnarráðsins til almennrar kynningar og umsagnar. Engin umsögn barst. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 1. nóvember 2019. Lögin voru samþykkt á Alþingi 17. desember 2019.

Málsefni

Lagðar eru til breytingar á lögum um matvæli, lögum um eftirlit með fóðri áburði og sáðvöru, lögum um sjávarafurðir og lögum um slátrun og sláturafurðir.

Nánari upplýsingar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um matvæli, lögum um eftirlit með fóðri áburði og sáðvöru, lögum um sjávarafurðir og lögum um slátrun og sláturafurðir, m.a. til einföldunar regluverks sem gildir um matvælakeðjuna og innleiðingar á reglugerð 2017/625/ESB um opinbert eftirlit.

Í samræmi við áherslur ríkisstjórnar um einföldun regluverks er markmið lagasetningarinnar að einfalda hið íslenska regluverk sem gildir um matvælakeðjuna, í þágu atvinnulífs og almennings. Auk þess er breytingunum ætlað að stuðla að samræmdara og skilvirkara eftirlitskerfi fyrir matvælakeðjuna í heild sinni sem leiðir af sér enn frekara matvælaöryggi og bættari neytendavernd.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið

postur@anr.is