Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.–26.8.2019

2

Í vinnslu

  • 27.2019–24.8.2020

3

Samráði lokið

  • 25.8.2020

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-208/2019

Birt: 16.8.2019

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Dómsmálaráðuneytið

Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Breyting á lögum um íslenskan ríkisborgararétt

Niðurstöður

Engar umsagnir bárust um frumvarpið. Það var lagt fram á Alþingi og samþykkt sem lög nr. 11/2020. Lögin voru birt í A deild Stjórnartíðinda 3. mars 2020 og öðluðust gildi 1. apríl 2020. https://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=da145c6d-8c73-4a4d-8fd9-f314e78f8de2

Málsefni

Lagðar eru til breytingar á lögunum með það að markmiði að auka skilvirkni og skerpa á ákvæðum þeirra.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið felur í sér breytingar á nokkrum ákvæðum laga um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952 er varða skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar og snerta biðtíma vegna refsinga. Með hliðsjón af breytingum á reglum um fjárhæðir sekta vegna umferðarlagabrota eru lagðar til úrbætur á 6. tölul. 9. gr. laganna til að koma í veg fyrir að reglurnar raski upphaflegum tilgangi ríkisborgaralaga um biðtíma vegna refsinga.

Til samræmis við ný lög um útlendinga er lögð til lítils háttar breyting á heimild umsækjanda um ríkisborgararétt til dvalar erlendis. Í þeim tilgangi að skýra lögin betur er jafnframt ákvæði um hversu löng dvöl erlendis megi vera án þess að hún skerði dvalartíma hér á landi. Vegna nýrra laga um útlendinga er einnig lögð til breyting á búsetuskilyrði maka íslensks ríkisborgara úr þremur árum í fjögur ár.

Loks er lagt til að tekið verði aftur upp í lögin ákvæði um heimild til að endurveita íslenskan ríkisborgararétt þeim sem misstu íslenska ríkisfangið fyrir 1. júlí 2003, vegna ákvæða í eldri lögum, en ákvæðið hefur tvívegis verið tímabundið í lögunum.

Sambærilegar breytingar voru lagðar fram á samráðsgátt í febrúar sl. en voru ekki lagðar fram á Alþingi. Þar var þó gengið lengra en gert er nú og kveðið á um að horfið yrði frá þeirri meginreglu að Alþingi afgreiddi umsóknir um ríkisborgararétt heldur yrðu þær afgreiddar að meginstefnu á stjórnsýslustigi, hjá Útlendingastofnun. Sömuleiðis var því gert ráð fyrir að Útlendingastofnun hefði heimildir til að leggja mat á tiltekin atriði við afgreiðslu umsókna. Fallið hefur verið frá þeirri breytingartillögu í frumvarpi þessu.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Dómsmálaráðuneyti

postur@dmr.is