Til umsagnar
7.–21.9.2018
Í vinnslu
22.–23.9.2018
Samráði lokið
24.9.2018
Mál nr. S-122/2018
Birt: 7.9.2018
Fjöldi umsagna: 0
Áform um lagasetningu
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Markaðseftirlit og neytendamál
Engar umsagnir bárust. Sett voru lög um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur, nr. 31/2019.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið áformar að leggja fram frumvarp til að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/751 um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur.
Með reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/751 um milligjöld fyrir kortatengdar greiðslur, sem til stendur að taka upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eru sett hámörk á milligjöld sem færsluhirðar greiða kortaútgefendum vegna notkunar neytendagreiðslukorta, 0,2% af fjárhæð greiðslu vegna debetkorta og 0,3% vegna kreditkorta. Auk þess er meðal annars kveðið á um bann við svæðisbundnum takmörkunum í leyfissamningum eða í reglum um greiðslukortakerfi og mælt fyrir um aðskilnað greiðslukortakerfa og vinnsluaðila, aukin úrræði korthafa og söluaðila til að ákveða greiðslumáta, sundurliðun þjónustugjalda færsluhirða og upplýsingagjöf færsluhirða til söluaðila. Reglugerðinni er ætlað að lækka kostnað söluaðila og neytenda, bæta samkeppni og stuðla að samþættingu greiðslukortamarkaða þvert á landamæri innan Evrópu.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa fjármálamarkaðar
gunnlaugur.helgason@fjr.is