Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Innheimtufulltrúi - Ísafjörður
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.04.2024
Umsóknarfrestur
13.05.2024
Innheimtufulltrúi - Ísafjörður
Laus er til umsóknar staða innheimtufulltrúa við embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra. Starfsstöð er á Ísafirði
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. júlí eða fyrr sé þess kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða stöðu innheimtufulltrúa við innheimtusvið embættisins. Í boði er áhugavert og fjölbreytt starf innan stofnunar í stöðugri þróun. Starfið felst í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að mestu að innheimtu meðlags en að auki annarri innheimtu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins.
Upplýsingagjöf í síma og tölvupósti við viðskiptavini og hagsmunaaðila
Greining og úrvinnsla erinda viðskiptavina
Úthringingar
Eftirfylgni innheimtumála samkvæmt hlutverki innheimtumiðstöðvar
Gerð greiðsluáætlana
Auk annarra tilfallandi verkefna á starfssviði embættisins
Hæfniskröfur
Stúdentspróf (3. þrep íslenska hæfnirammans) eða reynsla í sambærilegu starfi
Önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
Jákvæðni, þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
Hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum
Rík samstarfshæfni og geta til að vinna undir álagi
Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum
Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að skrá sig í ræðu og riti
Reynsla af innheimtustörfum er kostur, svo og önnur reynsla sem nýtist í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra er framsækin stjórnsýslu- og þjónustustofnun sem fer með framkvæmdarvald ríkisins innan umdæmis síns auk þess að sinna viðamiklum sérverkefnum á landsvísu; rekstri innheimtumiðstöðvar og framkvæmd laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
Umsókn um starfið skal skila rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins og skulu starfsferilskrá og stutt kynningarbréf fylgja sem og prófskírteini ef við á.
Einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.05.2024
Nánari upplýsingar veitir
Erna Björg Jónmundsdóttir, erna.bjorg.jonmundsdottir@syslumenn.is
Sími: 4582521
Þórdís Hjálmarsdóttir, thordis.hjalmarsdottir@syslumenn.is
Sími: 4582500
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Innheimtufulltrúi - Ísafjörður
Staðsetning
Vestfirðir
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.04.2024
Umsóknarfrestur
13.05.2024