Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 15.–30.9.2026

Í vinnslu

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-174/2026

Birt: 25.9.2026

Fjöldi umsagna: 0

Drög að frumvarpi til laga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Fjölmiðlun

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu (tekjuöflun Ríkisútvarpsins o.fl.)

Málsefni

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu (tekjuöflun Ríkisútvarpsins o.fl.)

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu er lagt til að:

• Felldar verði brott úr 3. gr. laganna, kvaðir um lágmarksfjölda útvarps- og sjónvarpsstöðva sem Ríkisútvarpinu er skylt að dreifa um allt land. Með breytingunni verður stjórn RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum. Ekki er talið nauðsynlegt eða æskilegt að fjöldi rása Ríkisútvarpsins sé sérstaklega tilgreindur í lögum.

• Gerðar verði breytingar á 14. gr. laganna, um tekjustofna Ríkisútvarpsins. Lagt er til að tekjur RÚV af útvarpsgjaldi verði skertar um fjárhæð sem nemur 10% af auglýsingatekjum RÚV á ári hverju. Hlutfallið reiknist af fjárhæð sem svarar til meðaltekna Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum næstu fjögur heilu reikningsár á undan. Jafnframt verði kveðið á um hámark („þak“) tekna Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum. Til frádráttar árlegum tekjum af útvarpsgjaldi komi fjárhæð sem nemur tekjum Ríkisútvarpsins af viðskiptaboðum umfram 2.800.000.000 kr. Hámarksfjárhæð tekur mið af meðaltali auglýsingatekna Ríkisútvarpsins 2022-2025 og ráðgert er að hún verði endurreiknuð við undirbúning fjárlaga hverju sinni að teknu tilliti til verðlagsbreytinga samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Breytingarnar eru í samræmi við viðauka II við þjónustusamning ráðherra og Ríkisútvarpsins 2024-2027, þar sem fram kemur að dregið verði úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði á samningstímabilinu. Þá er frumvarpið liður í aðgerðaráætlun stjórnvalda um málefni fjölmiðla sem kynnt var 19. desember 2025.

Frumvarpið hefur þau áhrif á ríkissjóð að hluti tekna ríkissjóðs af útvarpsgjaldi rennur ekki til Ríkisútvarpsins frá og með 2027. Áformað er að hækkun fjárframlaga til einkarekinna fjölmiðla í fjárlögum ár hvert taki mið af því. Komið verður til móts við tekjutap RÚV með því að færa skuldir vegna eldri lífeyrisskuldbindinga RÚV frá félaginu, eins og gert hefur verið hjá nær öllum opinberum aðilum og fyrirtækjum sem sinna opinberum rekstri.

Viltu senda inn umsögn?

Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.

Boð um þátttöku (22)

Umsjónaraðili

Skrifstofa nýsköpunar, rannsókna og stafrænna mála

mnh@mnh.is