Fara beint í efnið

Vinna barns yngra en 13 ára

Umsókn um leyfi vegna vinnu barns yngra en 13 ára

Börn yngri en 13 ára má almennt ekki ráða til vinnu. Þó er heimilt að ráða börn yngri en 13 ára til að taka þátt í:

  • menningar- og listviðburðum

  • íþróttastarfsemi

  • auglýsingastarfsemi

Afla skal leyfis Vinnueftirlitsins áður en til ráðningar kemur vegna vinnu barna yngri en 13 ára.

Vinnutími barna yngri en 13.ára

Haga skal vinnutíma og vinnuálagi barna þannig að það ógni ekki:

  • skólagöngu

  • heilbrigði

  • öryggi

Ávallt skal taka sérstakt tillit til aldurs og þroska barna við skipulagningu starfa.

Umsókn um leyfi vegna vinnu barns yngra en 13 ára

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið