Vernd persónuupplýsinga á netinu
Vafrakökur
Vafrakaka (á ensku cookie) er lítil rafræn skrá sem er hlaðið niður á tölvuna þína þegar þú heimsækir vefsíðu. Vafrakökur eru notaðar af mörgum vefsíðum og geta gert ýmislegt, eins og að:
muna kjörstillingar þínar,
skrá hvað þú hefur sett í innkaupakörfuna þína,
telja fjölda fólks sem skoðar vefsíðu.
Reglur um vafrakökur falla undir persónuverndarlög.
Hvernig stjórna ég mínum vafrakökum?
Í vafranum þínum getur þú:
eytt öllum vafrakökum
lokað fyrir allar vafrakökur
leyft allar vafrakökur
lokað fyrir vafrakökur þriðja aðila, eða vafrakökur settar af annarri netþjónustu en þeirri sem þú ert að heimsækja