Fara beint í efnið

Alþjóðleg vernd fyrir maka flóttamanns

Umsókn um dvalarleyfi og vernd fyrir maka flóttamanns

Maki flóttamanns á Íslandi á rétt á alþjóðlegri vernd með fjölskyldusameiningu, nema sérstakar ástæður mæli því í mót.

Rétturinn nær bæði til aðila sem eru giftir, þá er talað um hjúskaparmaka, og aðila í sambúð, þá er talað um sambúðarmaka.

Einstaklingur sem fær alþjóðlega vernd sem maki flóttamanns fær sömu réttindi og skyldur og flóttamaðurinn sem hann sameinast hér á landi. Hann er skilgreindur sem flóttamaður samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum og getur því ekki ferðast til heimaríkis/heimaríkja án þess að eiga á hættu að alþjóðleg vernd hans og þar með dvalarleyfi hér á landi verði afturkallað.

Maki flóttamanns getur að öðrum kosti sótt um almennt dvalarleyfi fyrir maka án alþjóðlegrar verndar.

Umsókn

Umsóknum er aðeins hægt að skila á pappírsformi, annað hvort í þar til gerðan skilakassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Einnig er hægt að leggja inn umsóknir hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Umsókn skal vera í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af umsækjanda.

Kostnaður

Ekki þarf að greiða afgreiðslugjald fyrir umsókn um alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við flóttamann.

Lög

Dvalarleyfið er veitt á grundvelli 73. greinar laga um útlendinga.

Umsókn um dvalarleyfi og vernd fyrir maka flóttamanns

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun