Fara beint í efnið

Alþjóðleg vernd fyrir foreldri fylgdarlauss flóttabarns

Umsókn um dvalarleyfi

Foreldri fylgdarlauss flóttabarns á Íslandi á rétt á alþjóðlegri vernd með fjölskyldusameiningu við barnið.

Einstaklingur sem fær alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við flóttamann fær sömu réttindi og skyldur og flóttamaðurinn sem hann sameinast hér á landi. Hann er skilgreindur sem flóttamaður samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum og getur því ekki ferðast til heimaríkis/heimaríkja án þess að eiga á hættu að alþjóðleg vernd hans og þar með dvalarleyfi hér á landi verði afturkallað.

Foreldrar annarra flóttamanna en fylgdarlausra barna eiga ekki rétt á alþjóðlegri vernd á Íslandi en þeir gætu sótt um almennt dvalarleyfi fyrir foreldri 67 ára eða eldri.

Umsókn

Umsóknum er aðeins hægt að skila á pappírsformi, annað hvort í þar til gerðan skilakassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Einnig er hægt að leggja inn umsóknir hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Umsókn skal vera í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af forsjáraðila.

Kostnaður

Ekki þarf að greiða afgreiðslugjald fyrir umsókn um alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við flóttamann.

Lög

Dvalarleyfi fyrir foreldri fylgdarlausra flóttabarna eru veitt á grundvelli 73. greinar laga um útlendinga.

Umsókn um dvalarleyfi

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun