Fara beint í efnið

Alþjóðleg vernd fyrir börn flóttamanna

Umsókn um dvalarleyfi og vernd fyrir barn flóttamanns

Skilyrði

  • Barnið er yngra en 18 ára þegar umsókn er lögð fram.

  • Barnið á ekki maka.

  • Barnið á foreldri sem hefur dvalarleyfi sem flóttamaður á Íslandi og býr þar.

  • Barnið er í forsjá þess foreldris sem það sækir um fjölskyldusameiningu við.

Forsjáraðili sem ekki er líffræðilegt foreldri barns á ekki rétt á dvalarleyfi fyrir barnið nema forsjáraðilinn hafi jafnframt ættleitt það.

Ættleiðingu þarf að vera lokið áður en umsókn er lögð fram og hún þarf að vera gerð í samræmi við íslensk lög. Ef einstaklingur búsettur hér á landi ætlar að ættleiða barn erlendis, þarf forsamþykki sýslumanns fyrir henni, sjá lög um ættleiðingar númer 130/1999.

  • Barnið mun búa hjá forsjárforeldri sínu.

  • Ef báðir foreldrar fara með forsjá barns þarf það foreldri sem ekki er sótt um fjölskyldusameiningu við að samþykkja að barnið fái dvalarleyfi hér á landi.

Umsókn um dvalarleyfi og vernd fyrir barn flóttamanns

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun