Fara beint í efnið

Alþjóðleg vernd fyrir börn flóttamanna

Umsókn um dvalarleyfi og vernd fyrir barn flóttamanns

Börn flóttamanna á Íslandi eiga rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi með fjölskyldusameiningu við foreldri. Skilyrði er að barnið sé yngra en 18 ára, í forsjá þess foreldris sem það sækir um sameiningu við og ógift.

Barn, sem fær alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við flóttamann, fær sömu réttindi og skyldur og flóttamaðurinn sem það sameinast hér á landi. Barnið er skilgreint sem flóttamaður samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðasamningum og getur því ekki ferðast til heimaríkis/heimaríkja án þess að eiga á hættu að alþjóðleg vernd þess og þar með dvalarleyfi hér á landi verði afturkallað.

Að öðrum kosti er hægt að sækja um almennt dvalarleyfi fyrir börn án alþjóðlegrar verndar.

Umsókn

Umsóknum er aðeins hægt að skila á pappírsformi, annað hvort í þar til gerðan skilakassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 í Kópavogi eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang. Einnig er hægt að leggja inn umsóknir hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Umsókn skal vera í frumriti, vel útfyllt og undirrituð af forsjáraðila.

Kostnaður

Ekki þarf að greiða afgreiðslugjald fyrir umsókn um alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við flóttamann.

Lög

Dvalarleyfi fyrir börn eru veitt á grundvelli 73. greinar laga um útlendinga.

Umsókn um dvalarleyfi og vernd fyrir barn flóttamanns

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun