Hafskipulag

Viltu slást í hópinn? Starf sérfræðings í skipulagsgerð og stefnumótun
12. maí 2025

Skipulagsstofnun auglýsir eftir sérfræðingi til starfa á svið stefnumótunar og miðlunar. Um er að ræða starf sérfræðings sem kemur að vinnu við gerð og framfylgd strandsvæðisskipulags, raflínuskipulags og landsskipulagsstefnu.
Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi og krefjast agaðra vinnubragða, drifkrafts, samskiptahæfileika og þekkingar á skipulagsmálum. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og í verkefnisteymum.
Helstu verkefni sérfræðings í skipulagsgerð og stefnumótun
Halda utan um vinnu við gerð strandsvæðisskipulags og framfylgd þess fyrir hönd svæðisráða ásamt því að vinna að gerð raflínuskipulags fyrir hönd raflínunefnda.
Gerð og framfylgd landsskipulagsstefnu.
Ýmis verkefni við stefnumótun, leiðbeiningar og miðlun um skipulagsgerð og umhverfismat.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði skipulagsmála er skilyrði.
Meistarapróf á sviði skipulagsmála og réttindi til skipulagsgerðar skv. skipulagslögum er æskileg.
Gott vald á íslensku í ræðu og riti og góð enskukunnátta er nauðsynleg.
Þekking eða reynsla sem nýtist í starfi.
Þekking á opinberri stjórnsýslu á sviði skipulagsmála.
Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
Nákvæmni og ögun í vinnubrögðum.
Skipulagsstofnun sinnir stefnumótun, stjórnsýslu og leiðbeiningum um skipulag og framkvæmdir með sjálfbæra nýtingu auðlinda og vandaða byggð að leiðarljósi. Stofnunin vinnur í víðtæku samráði við sveitarfélög, önnur stjórnvöld og hagsmunaaðila.
Skipulagsstofnun starfar á grundvelli skipulagslaga, laga um skipulag haf- og strandsvæða, laga um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana og heyrir undir félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Hjá stofnuninni ríkir góður starfsandi og í boði er góð starfsaðstaða.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir frá ráðningu.
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí nk.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar má finna á vinnvinn.is Umsjón með ráðningarferlinu hafa Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is) og Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.