Fara beint í efnið

Upplýsingar úr ökutækjaskrá

Samgöngustofa er ábyrgðaraðili ökutækjaskrár og annast miðlun á upplýsingum til vinnsluaðila.

Í ökutækjaskrá Samgöngustofu skal skrá þau ökutæki sem eru í umferð, eigendur/umráðendur, sem og skrá skal tiltekin tækniatriði ökutækjanna.

Þessar upplýsingar eru skráðar vegna opinbers eftirlits með ökutækjum og lögbundinni skráningarskyldu. Þær upplýsingar eru ekki skráðar svo unnt sé að reiða sig á þær í lögskiptum aðila. Samgöngustofa minnir því á skoðunarskyldu kaupanda og upplýsingaskyldu seljanda í ökutækjaviðskiptum.

Vinnsluaðilar

Vinnsluaðilar eru þeir sem gert hafa samning við Samgöngustofu um vinnslu upplýsinga og miðlun þeirra áfram til notenda. 

Eftirfarandi aðilar hafa gert samning við Samgöngustofu um sölu gagna úr ökutækjaskrá:


Reglur um upplýsingamiðlun úr ökutækjaskrá - US.384

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa