Fara beint í efnið

Upplýsingar fyrir vitni

Á þessari síðu

Skýrslutaka fyrir dómi

Ef rannsókn lögreglunnar leiðir til þess að gefin er út ákæra og málið fer fyrir dóm geta vitni þurft að gefa skýrslu fyrir dómi.

Hverjir þurfa að mæta fyrir dóm?

Allir, sem náð hafa 15 ára aldri, eru skyldugir til að koma fyrir dóm sem vitni til að svara spurningum um málsatvik. Vitni getur þó í ákveðnum tilvikum verið undanþegið því að gefa skýrslu. Ástæður fyrir því geta verið:

  • ef vitnið er eða hefur verið maki ákærða

  • er skyldmenni ákærða í beinan legg eða tengist honum þannig vegna ættleiðingar

  • er stjúpforeldri ákærða eða stjúpbarn, tengdaforeldri ákærða eða tengdabarn.

Ef barn er yngra en 15 ára er mögulegt að sú skýrslutaka fari fram í Barnahúsi.

Komi vitni ekki fyrir dóm án þess að um lögmæt forföll sé að ræða getur sækjandi beðið lögreglu að sækja vitnið og færa það fyrir dóm.

Fyrir utan dómsalinn

Þegar vitni kemur í dómhús þarf yfirleitt að bíða fyrst fyrir utan dómsalinn þar til vitnið er sótt og beðið um að koma inn. Vitni má ekki hlusta á framburð þeirra sem gefa skýrslur á undan því. Miklu skiptir að vera stundvís og mæta á boðuðum tíma, en stundum dragast skýrslutökur og þá getur orðið einhver bið á því að vitni verði kölluð inn í dómsalinn.

Í dómsalnum

Í dómsalnum eru:

  • dómari, eða dómarar

  • sækjandi

  • ákærði og verjandi hans

  • í sumum tilvikum réttargæslumaður brotaþola.

Meðferð sakamála fyrir dómi er almennt opin og því getur verið að fleiri séu viðstaddir í dómsalnum.

Í miðjum dómsalnum situr dómari eða dómarar ef þeir eru fleiri en einn. Sækjandi situr vinstra megin í dómsalnum, frá vitninu séð, ásamt réttargæslumanni brotaþola en ákærði og verjandi hans sitja hægra megin.

Þegar skýrslutaka fer fram situr vitni í sæti fyrir framan dómara. Við upphaf skýrslutöku biður dómari vitni um að gera grein fyrir nafni sínu og útskýrir í stuttu máli hvernig framkvæmdin verður. Dómari greinir vitninu frá að því sé skylt að segja satt og rétt frá og að refsivert sé að skýra rangt frá fyrir dómi. Þetta þýðir ekki að dómari búist við að vitnið muni segja ósatt, heldur ber dómara skylda til að leiðbeina vitninu um þetta og segir þetta við öll vitni sem koma fyrir dóminn til að gefa skýrslu. Yfirleitt er vitni fyrst beðið um að segja frá því atviki sem er til umfjöllunar og síðan spyr sækjandi út í einstök atriði. Eftir að sækjandi hefur spurt spurninga býðst verjanda að spyrja og stundum spyr dómari einnig.

Markmið skýrslutöku er að varpa ljósi á atvik máls. Mikilvægt er að vitni segi aðeins frá samkvæmt sinni bestu vitneskju og eigin minni og láti vita ef það er óvisst um einhver atriði. Stundum rifja dómari, sækjandi eða verjandi upp hvað vitnið sagði í skýrslutöku hjá lögreglu og bera undir vitnið hvort sú lýsing atvika hafi verið rétt.

Kostnaður við ferðir

Vitni sem er boðað fyrir dóm af ákæranda getur óskað eftir því að ákærandinn annist greiðslu vegna ferða og dvalar á dómstað. Þetta á einkum við ef vitni þarf að ferðast um lengri veg og jafnvel dvelja yfir nótt utan heimilis vegna vitnaskyldu sinnar. Styttri ferðir innan sama bæjarfélags falla ekki þar undir. Vitni getur, þegar það hefur gefið skýrslu fyrir dómi, krafist þess við dómara að hann ákveði því greiðslu vegna útlagðs kostnaðar og þóknun fyrir atvinnumissi, sem má telja að skipti það máli miðað við efnahag og aðstæður.

Nánari upplýsingar um framkvæmd skýrslutöku hjá lögreglu er að finna í reglugerð nr. 651/2009.

Þjónustuaðili

Ríkis­sak­sóknari

Ríkissaksóknari

Hafðu samband

Sími: 444 2900

Netfang: saksoknari@saksoknari.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga er opið frá
9 til 12 og 13 til 15

Föstudaga er opið frá 9 til 12

Heim­il­is­fang

Suðurlandsbraut 4, 6. hæð

108 Reykjavík

Kennitala 530175-0229