Fara beint í efnið

Sakborningur á rétt á að fá upplýsingar um það sem hann er sakaður um áður en skýrsla er tekin af honum hjá lögreglu.

  • Meðan á rannsókn lögreglu stendur er verjanda alltaf heimilt að vera viðstaddur þegar tekin er skýrsla af skjólstæðingi hans.

  • Verjanda er heimilt að tala einslega við sakborning um allt sem málið varðar og á að gæta hagsmuna sakbornings og halda uppi vörnum fyrir sakborning komi til þess að málið fari fyrir dóm.

  • Hlutverk verjanda er að draga fram í málinu allt sem verða má sakborningi til sýknu eða hagsbóta og gæta réttar hans til hins ítrasta.

  • Verjanda er heimilt að heimsækja sakborning í fangelsi og ræða málið við sakborning á meðan sakborningur er í haldi.

  • Eftir að ákæra hefur verið gefin út á verjandi rétt á því að vera viðstaddur öll þinghöld í máli og ber dómara að tilkynna honum um þau.

  • Eftir að dómur hefur fallið í máli er það hlutverk verjanda að leiðbeina ákærða um næstu skref til dæmis um áfrýjun hafi niðurstaða dóms verið sakfelling.

  • Þagnarskylda hvílir á verjanda um það sem skjólstæðingur trúir honum fyrir um afstöðu sína til brotsins og um önnur þau atriði sem hann hefur komist að í starfi sínu sem verjandi.

Þjónustuaðili

Ríkis­sak­sóknari

Ríkissaksóknari

Hafðu samband

Sími: 444 2900

Netfang: saksoknari@saksoknari.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga er opið frá
9 til 12 og 13 til 15

Föstudaga er opið frá 9 til 12

Heim­il­is­fang

Suðurlandsbraut 4, 6. hæð

108 Reykjavík

Kennitala 530175-0229