Fara beint í efnið

Upplýsingar fyrir brotaþola

Á þessari síðu

Réttargæslumaður

Réttargæslumaður er lögmaður sem hefur það hlutverk að gæta hagsmuna brotaþola og veita þeim aðstoð í málinu, þar á meðal við að setja fram bótakröfu. Þóknun réttargæslumanns greiðist úr ríkissjóði.

Hlutverk réttargæslumanns

  • Útskýrir málsmeðferðina fyrir brotaþola.

  • Er viðstaddur þegar brotaþoli gefur skýrslu hjá lögreglu.

  • Er viðstaddur fyrir dómi þar sem hann er brotaþola til halds og trausts.

  • Getur aflað upplýsinga fyrir hönd brotaþola um stöðu og meðferð málsins hjá lögreglu og ákæruvaldi.

  • Á rétt á að vera viðstaddur þegar mál brotaþola er tekið fyrir í dómi.

Hvenær á brotaþoli rétt á réttargæslumanni?

Ef um kynferðisbrot er að ræða á brotaþoli rétt á að fá tilnefndan réttargæslumann við rannsókn málsins, ef hann óskar þess.

Sé brotaþoli kynferðisbrots yngri en 18 ára skal honum alltaf tilnefndur réttargæslumaður.

Þar að auki getur brotaþoli í málum sem varða önnur ofbeldisbrot og brot gegn frjálsræði manna átt rétt á að fá tilnefndan réttargæslumann, óski hans þess, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Sjá nánar 41. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Þjónustuaðili

Ríkis­sak­sóknari

Ríkissaksóknari

Hafðu samband

Sími: 444 2900

Netfang: saksoknari@saksoknari.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga er opið frá
9 til 12 og 13 til 15

Föstudaga er opið frá 9 til 12

Heim­il­is­fang

Suðurlandsbraut 4, 6. hæð

108 Reykjavík

Kennitala 530175-0229