Fara beint í efnið

Uppbót til að reka bíl lífeyrisþega

Uppbót til að reka bíl

Heimilt er að greiða hreyfihömluðum lífeyrisþega uppbót til að mæta kostnaði við rekstur bifreiðar.

Uppbótin er greidd mánaðarlega með öðrum lífeyrisgreiðslum.

Meta þarf hreyfihömlun umsækjanda út frá hreyfihömlunarvottorði frá lækni.

Þú getur sótt um uppbót vegna reksturs bíls ef þú færð:

Fjárhæðin er 23.293 krónur á mánuði.

Uppbótin er greidd út samhliða lífeyrisgreiðslum (örorka, endurhæfing eða ellilífeyrir) svo lengi sem hreyfihömlunarmat er í gildi og lífeyrisþegi á bíl.

Niðurstaða

Þegar niðurstaða umsóknar liggur fyrir færðu tölvupóst og tilkynningu á Mínar síður TR undir Mín skjöl.

Þar getur þú einnig séð upphæðir út árið í greiðsluáætlun.

Ef þú ert ósammála ákvörðuninni getur þú:

Greiðslur uppbótar til að reka bíl

Uppbótin er fyrirframgreidd fyrsta dag hvers mánaðar samhliða lífeyrisgreiðslum.

Ef greiðslur eru samþykktar afturvirkt er inneign greidd út eins fljótt og auðið er á þann bankareikning sem skráður er á Mínar síður.

Uppbót til að reka bíl

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun