Fara beint í efnið

Undanþágur til að gegna stöðu á skipi án tilskilinna réttinda

Umsókn um undanþágu til starfa á skipum öðrum en farþega- og flutningaskipum

Heimildir til undanþágu frá kröfu um réttindi til í tilteknar stöður hafa verið felldar inn í ný lög um áhafnir skipa. Samkvæmt lögunum er Samgöngustofu heimilt í undantekningartilvikum að veita einstaklingi undanþágu til að gegna stöðu á tilteknu skipi þótt hann hafi ekki tilskilin réttindi, þó ekki lengur en til 6 mánaða. Undanþáguna má þó aðeins veita þeim sem hefur skírteini til að gegna næstu lægri stöðu eða hefur lokið tilskildu námi til öflunar skírteinis í þá stöðu sem sótt er um undanþágu fyrir.

Undanþágu má ekki veita til að gegna stöðu skipstjóra eða yfirvélstjóra nema í neyðartilvikum og þá aðeins í eins skamman tíma og unnt er. 

 Þá má ekki veita undanþágu sem fer gegn ákvæðum alþjóðasamþykkta, samanber STCW og STCW-F.  

Laga og reglugerðastoð

  • Lög um áhafnir skipa nr. 82/2022.

  • Reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum, nr. 944/2020.

Umsókn um undanþágu til starfa á skipum öðrum en farþega- og flutningaskipum

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa