Fara beint í efnið

Umsókn vegna vísindarannsóknar eða skimunar þar sem notuð er jónandi geislun

Sækja þar leyfi vegna vísindarannsókna eða skimunar þar sem notuð er jónandi geislun.

Fylgigögn

Með umsókn þarf að fylga:

  • Rannsóknarlýsing, þar sem tilgangi og framkvæmd er lýst.

  • Mat á geislaálagi vegna framkvæmdar rannsóknarinnar, fjöldi þátttakenda og þess háttar

  • Eintak af upplýstu samþykki þátttakenda. Stofnunin getur aðstoðað við orðalag vegna áhættu við þátttöku í rannsókninni.

  • Afrit af leyfi viðkomandi siðanefndar. Það þarf ekki að liggja fyrir, en verður þá gert að skilyrði fyrir leyfi.

Vinnslutími

Þegar öll nauðsynleg gögn hafa borist leggur Geislavarnir ríkisins mat á geislaálag þátttakenda og hvort upplýsingar og orðalag í upplýstu samþykki sé í samræmi við þetta mat.

Mat á áhættu og gagnsemi rannsóknarinnar er miðað við leiðbeiningar ICRP (Publication 62, Radiological Protection in Biomedical Research). Geislavarnir ríkisins munu í framhaldinu leita álits landlæknis á því hvort leyfi skuli veitt eða ekki og þá með hvaða skilyrðum.

Þjónustuaðili

Geislavarnir ríkisins

Geislavarnir ríkisins

Hafðu samband

Sími: 440 8200

Netfang: gr@gr.is

Afgreiðslan er opin

Alla virka daga frá 9 til 12 og 13 til 15

Heim­il­is­fang

Rauðarárstígur 10

105 Reykjavík

Kennitala: 540286-1169