Fara beint í efnið

Umsókn um undanþágu frá drónareglugerð

Umsókn um undanþágu

Hægt er að sækja um undanþágu til Samgöngustofu frá eftirfarandi ákvæðum reglugerðar nr. 990/2017 fyrir starfrækslu dróna í atvinnuskyni, að því gefnu að öryggi sé ekki stefnt í hættu.

  •  Þyngd loftfars til notkunar í þéttbýli yfir7kg.

  •  Þyngd loftfars til notkunar í strjálbýli yfir 25kg

  •  Banni við flugi yfir mannfjölda

  •  Flugi þar sem svæðistakmarkanir eru í gildi

  •  Ákvæðum í flugmálahandbók

  •  Ákvæði um hámarksflughæð 120m

  •  Ákvæði um bann við flugi úr augsýn (BVLOS)

  •  Fjarlægð frá opinberum byggingum 150m

Fylgigögn:

Til þess að hægt sé að taka beiðni um undanþágu til afgreiðslu þarf að uppfylla nokkur skilyrði. Með umsókn þarf að leggja fram:

  • Öryggismat

  • Rekstrarhandbók

  • Staðfestingu á tryggingum

  • Lýsingu á tækjum og búnaði

  • Kort af svæðinu sem fljúga á yfir

  • Lýsing á verkefni

  • Upplýsingar um stjórnanda drónans

Kostnaður

Gjald vegna vinnslu umsóknar um undanþágu er skv. gjaldskrá Ssamgöngustofu lið 2.26.10.



Umsókn um undanþágu

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa