Fara beint í efnið

Umsókn um persónulegan talsmann

Fatlað fólk sem á erfitt með að gæta hagsmuna sinna á rétt á persónulegum talsmanni til að aðstoða sig við að fara með sjálfræði sitt. Persónulegur talsmaður aðstoðar fólk við að:  

  • Gæta réttar síns og njóta réttinda  

  • Sækja um hverskonar þjónustu  

  • Fá nauðsynlegar upplýsingar og taka upplýstar ákvarðanir   

  • Fylgjast með fjármálum og greiða reikninga  

Bæði fatlaðir einstaklingar eða væntanlegir talsmenn geta sótt um að réttindagæslan geri samning um persónulegan talsmann. Skilyrði er að talsmaður hafi þekkingu á þörfum og óskum þess einstaklings sem hann aðstoðar og ljúki netnámskeiði um hlutverkið.  

Umsókn um persónulegan talsmann

Það er skilyrði fyrir samning um persónulegan talsmann að réttindagæslumaður kanni vilja og aðstæður þess fatlaða einstaklings sem sækir um talsmann. Athugið, að fólk getur haft fleiri en einn talsmann. Í þeim tilvikum er skilað inn annarri umsókn.

Réttindagæsla fyrir fatlað fólk

Heim­il­is­fang

Austurströnd 3

170 Seltjarnarnes

Afgreiðslu­tími

Opið alla virka daga milli kl. 10 -14

Sími: 554 8100