Fara beint í efnið

Umsókn um framhaldsskóla

Umsókn um skólavist

Íslenskir framhaldsskólar bjóða upp nám í áfanga- eða bekkjakerfi, sem veitir undirbúning fyrir frekara nám eða starfsréttindi.

Nám í framhaldsskóla er ekki skylda en öll eiga rétt á skólavist til 18 ára aldurs.

Opið fyrir umsóknir

  • Starfsbrautir: 1. febrúar – 28. febrúar

  • Innritun eldri nema: 14. mars – 26. maí

  • Innritun nemenda úr grunnskóla: 25. apríl – 10. júní

Svona sækir þú um

  1. Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum (nemanda eða forsjáraðila).

  2. Umsækjandi byrjar á því að samþykkja gagnaöflun þar sem meðal annars eru sóttar persónuupplýsingar úr þjóðskrá.

  3. Sótt er um tvo skóla og tvær brautir innan hvers skóla. Möguleiki í boði fyrir nemendur úr 10. bekk að bæta við vali á þriðja skólanum.

  4. Settu fylgigögn með umsókninni ef þess þarf. Dæmi um fylgigögn eru:

    • Vottorð eða sérstakar upplýsingar um sértæka námsörðugleika

    • Námsferil úr erlendum skólum og sértækum skólum. Einnig má senda slík gögn til viðkomandi skóla með pósti eða biðja viðkomandi grunnskóla um að senda þau.

Ekki skal senda greiningargögn og prófskírteini úr grunnskóla með umsóknum.

Þegar grunnskólum hefur verið slitið í vor flytjast skólaeinkunnir (lokavitnisburður) nemenda rafrænt til þeirra skóla sem þeir sóttu um hjá.

Skilyrði

Til að geta byrjað nám í framhaldsskóla þarftu að hafa lokið grunnskólanámi, grunnskólaprófi, hlotið jafngilda undirstöðumenntun eða vera orðin 16 ára.

Við hvetjum nemendur eindregið til að skoða inntökuskilyrði þeirra skóla sem þau hafa áhuga á áður en sótt er um. Inntökuskilyrðin má sjá á heimasíðu viðkomandi skóla.

Hvað gerist næst?

Eftir að innritun lokar, er ekki hægt að breyta umsókn.

Framhaldsskólar velja inn nemendur út frá þeim viðmiðum sem viðkomandi skóli hefur sett.

Staðfesting á skólavist

Framhaldsskólinn sem samþykkir umsóknina þína sendir þér

  • staðfestingu á skólavist

  • greiðsluseðil fyrir innritunargjöldum með tilgreindum greiðslufresti

Ef þú greiðir ekki gjaldið á réttum tíma er litið svo á að þú þiggir ekki veitta skólavist og afsalir þar með rétti þínum til skólavistar á viðkomandi önn.

Ef þú færð ekki skólavist

Fái umsækjandi ekki skólavist í þeim skólum sem sótt var um sér Miðstöð menntunar og skólaþjónustu um að tryggja öllum undir 18 ára skólavist.

Stefnt er að því að öll hafi fengið skólavist fyrir lok júní 2025.

Umsókn um skólavist

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280