Fara beint í efnið

Umferðaröryggisáætlun er hluti af samgönguáætlun og er hlutverk hennar að:

  • auka umferðaröryggi á Íslandi

  • fækka umferðarslysum

  • bæta umferðarmenningu

Umferðaröryggisáætlun er stefnumarkandi áætlun og er sett til fimmtán ára.  Í þeirri áætlun er að finna töluleg markmið sem og áherslur og stefnu í umferðaröryggismálum.

Aðgerðaráætlun

Lýsingu á þeim verkefnum sem farið verður í til þess að ná settum markmiðum er að finna í aðgerðaráætlun. Aðgerðaráætlun er sett til fimm ára og er gildandi aðgerðaáætlun í gildi frá 2020-2024.

Fækkun slysa

Markmið um fækkun slysa eru tvö:

  • Að Ísland verði í hópi fimm bestu Evrópuþjóða hvað varðar fjölda látinna í umferðinni á hverja 100.000 íbúa.

    • Til þess að styðja við markmiðið eru sett 11 undirmarkmið, þar sem hvert undirmarkmið lýtur að því að fækka

      • ákveðinni gerð slysa

      • slysa meðal ákveðins hóps

og styðja það þannig við síðara markmiðið, sem er:

  • að látnum og alvarlega slösuðum fækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2034.

Markmið um bætta hegðun í umferðinni

Sett eru fram í fyrsta skipti markmið um bætta hegðun í umferðinni, í gildandi áætlun sem eiga að stuðla að:

  • bætir umferðarmenningu

  • færra slysum

Lög og reglur

Gildandi umferðaröryggisáætlun er frá 2020-2034 og hægt lesa meira um markmiðin í umferðaröryggisáætluninni.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa