Fara beint í efnið

Umferðareftirlit lögreglu vegna skoðunar og ástands

Umferðareftirlit lögreglu

Lögregla hefur með höndum eftirlit með ökutækjum í umferðinni með tilliti til skoðunar og ástands. Bæði getur hún stöðvað ökutæki og framkvæmt skyndiskoðun en einnig boðað ökutæki til skoðunar hjá skoðunarstofu sem hún hefur stöðvað af öðrum ástæðum.

  • Ef lögregla stöðvar ökutæki sem ekki er í lögmæltu ástandi, annað hvort vegna vanbúnaðar eða vanrækslu á skoðun, skal hún boða ökutækið til sérstakrar skoðunar hjá skoðunarstofu.

  • Skyndiskoðanir, eða vegaskoðanir, eru aðallega framkvæmdar á stærri ökutækjum, svo sem á flutningabílum og rútum. Skyndiskoðanir eru skipulagðar fyrirfram, ákveðinn búnaður til staðar og skoðunarskýrsla gefin út sem færð er í ökutækjaskrá.

Ökutæki boðað til skoðunar

Þegar lögregla boðar ökutæki til skoðunar gildir að:

  • Sérstakur boðunarmiði er límdur á skráningarmerkin.

  • Frestur er gefinn til að færa ökutækið til skoðunar hjá skoðunarstofu. Hámarksfrestur sem lögregla getur gefið til að færa ökutæki til skoðunar eru 7 dagar.

  • Boðunin er skráð í ökutækjaskrá.

Lögregla getur fjarlægt skráningarmerki af ökutækinu á staðnum ef umferðaröryggi er ógnað eða það er ekki með gilda tryggingu.

Undirbúningur fyrir skoðun eftir boðun lögreglu

Þegar skoðunarstofa skoðar ökutæki sem fært hefur verið til skoðunar vegna þess að lögregla boðaði það til skoðunar vegna vanbúnaðar, má ekkert vera að ökutækinu (nema minniháttar lagfæringar), annars fær það akstursbann (notkun bönnuð).

Áríðandi er því að:

  • Láta strax yfirfara ástand ökutækisins og láta lagfæra allt sem að er.

  • Færa ökutækið svo til skoðunar hjá skoðunarstofu áður en frestur til þess rennur út.

Eða

  • Skrá ökutækið úr umferð og hætta notkun þess tímabundið.

Hafi ökutæki ekki verið fært til skoðunar áður en frestur til þess rennur út getur lögregla fjarlægt skráningarmerki af ökutækinu.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa