Fara beint í efnið

Tilkynning um eigendaskipti ökutækis úr dánarbúi

Maki

  • Eftirlifandi maki getur óskað eftir því að fá ökutæki skráð yfir á sitt nafn ef hann hefur leyfi til setu í óskiptu búi. Til staðfestingar á því skal framvísa leyfinu eða sérstakri yfirlýsingu sýslumanns um búsetuleyfi til Samgöngustofu.

  • Heimilt er að skrá ökutæki yfir á maka þó opinber gjöld séu áhvílandi og ekki hafi verið lesið af ökumæli þegar það á við.

Erfingjar

  • Erfingjar látins eiganda geta óskað eftir því að láta skrá ökutæki yfir á sitt nafn ef þeir hafa leyfi til að skipta búi hins látna. Til staðfestingar á því skulu erfingjar skila til Samgöngustofu yfirlýsingu frá sýslumanni um hverjir erfingjar eru og að þeir hafi rétt til þess að ráðstafa eignum dánarbúsins.

  • Ef erfingjar óska þess að ökutæki verði skráð á einn af mörgum erfingjum skal framvísa tilkynningu um eigendaskipti ásamt yfirlýsingu sýslumanns. Tilkynning skal vera undirrituð af öllum erfingjum nema þeir hafi veitt umboð til undirritunar fyrir sína hönd (umboðið kemur oft fram aftast í einkaskiptaleyfi sýslumanns).

  • Ekki er heimilt að skrá ökutæki yfir á erfingja nema gengið sé frá greiðslu opinberra gjalda og lesið af ökumæli ef við á.

Kostnaður

  • Ekki þarf að greiða fyrir skráningu eigendaskipta af hinum látna yfir á maka hans eða erfingja sé gögnum framvísað samkvæmt framansögðu.

  • Ef ekki á að skrá ökutækið á alla erfingja þess skal greiða fyrir skráningu eigendaskipta.

  • Ef ökutæki er skráð beint yfir á annan en maka eða erfingja skal framvísa eigendaskiptatilkynningu og greiða fyrir skráningu eigendaskipta.


Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa