Fara beint í efnið

Þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd

Húsnæði og grunnþjónusta

Ef umsækjandi getur ekki séð um eigin framfærslu á meðan mál hans er til meðferðar stendur honum til boða húsnæði og grunnþjónusta á vegum Vinnumálastofnunar. Í grunnþjónustu fellst meðal annars:

  • Heilbrigðisþjónusta

  • Framfærsla

  • Skólaganga

  • Almenningssamgöngur/strætó innan sveitarfélags

Vinnumálastofnun er með samninga við félagsmálayfirvöld í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og Reykjavík um að útvega húsnæði og grunnþjónustu fyrir hönd stofnunarinnar.

Nánari upplýsingar um þjónustu við umsækjendur um vernd er að finna á vef Vinnumálastofnunar.

Þjónustuaðili

Vinnu­mála­stofnun

Tengt efni