Fara beint í efnið

Starfsleyfi ökukennara

Starfsleyfi ökukennara

Til þess að sjá um kennslu í akstri bifreiða og bifhjóla þarf að sækja um starfsleyfi ökukennara til sýslumanns í því umdæmi þar sem umsækjandi býr.  

Starfsleyfið gildir í fimm ár, þó ekki lengur en umsækjandi hefur ökuréttindi.

Skilyrði

  • Að vera orðinn 21 árs.

  • Að hafa ekið bifreið að staðaldri síðustu þrjú árin.

  • Að hafa staðist sérstakt próf fyrir ökukennara að afloknu ökukennaranámi.

Heimilt er að synja manni um starfsleyfi til ökukennslu hafi hann verið dæmdur í sakamáli fyrir brot sem varðar sviptingu starfsleyfis.

Fylgigögn

 Kostnaður

Fyrir starfsleyfi þarf að greiða 3.000 krónur.   

Nýtt ökuskírteini kostar 8.600 krónur fyrir yngri en 65 ára en 1.800 krónur fyrir 65 ára og eldri. 

 Lesa má nánar um starfsleyfið í kafla VIII í reglugerð um ökuskírteini.


Endurnýjun starfsleyfis

Starfsleyfi gildir í 5 ár en þó ekki lengur en ökukennari hefur ökuréttindi.

Skilyrði

  • Að viðkomandi fullnægi enn skilyrðum til útgáfu starfsleyfis

  • Að viðkomandi hafi á starfsleyfistímabilinu sótt endurmenntunarnámskeið sem Samgöngustofa viðurkennir.

 Fylgigögn

  • Læknisvottorð

  • Staðfesting Samgöngustofu um ökukennslu

  • Sakavottorð, hægt að sækja stafrænt á island.is

Kostnaður

Fyrir endurnýjun starfsleyfis þarf að greiða 3.000 krónur. 

Nýtt ökuskírteini kostar 8.600 krónur fyrir yngri en 65 ára en 1.800 krónur fyrir 65 ára og eldri. 

Samgöngustofa getur afturkallað starfsleyfi ökukennara ef skilyrðum fyrir útgáfu leyfis er ekki lengur fullnægt.

Starfsleyfi ökukennara

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15