Fara beint í efnið

Starfsemi veiðifélaga

Nýtingaráætlun

Vegna nýtingar á lax- og silungsveiðihlunnindum skal veiðifélag/veiðiréttareigandi gera nýtingaráætlun sem miðar að því að tryggja sjálfbæra nýtingu. Í nýtingaráætlun eru tilgreindar reglur um veiðiálag, svo sem:

  • stangarfjöldi

  • árlegur veiðitími

  • daglegur veiðitími

  • leyfilegur fjöldi landaðra fiska

  • takmörkun á stærð landaðra fiska

  • leyfilegt agn

  • fyrirkomulag netaveiði

  • friðun á tilteknum veiðisvæðum

  • líffræðileg viðmið

Veiðifélags/veiðiréttareiganda sendir Fiskistofu drög að nýtingaráætlun sem óskar umsagnar Hafrannsóknastofnunar vegna hennar. Fiskistofa staðfestir nýtingaráætlun ef hún er talin geta tryggt sjálfbæra nýtingu á viðkomandi vatnasvæði.

Nýtingaráætlun er gerð til átta ára í senn. Veiðifélag/veiðiréttareigandi getur endurskoðað nýtingaráætlun ef tilefni er til þess áður en átta ár eru liðin.

Þjónustuaðili

Fiski­stofa