Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstöður í heimilislækningum við heilsugæslu HSU í Hveragerði

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.07.2025

Umsóknarfrestur

12.08.2025

Sérnámsstöður í heimilislækningum við heilsugæslu HSU í Hveragerði

Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir lausar stöður sérnámslækna í heimilislækningum við heilsugæsluna í Hveragerði. Námið er byggt á marklýsingu fyrir sérnám í heimilislækningum og jafnframt taka sérnámslæknar vikulega þátt í fræðilegu námi og fyrirlestrum með öðrum sérnámslæknum í Reykjavík (hálfur dagur á viku).

Um er að ræða 100% starf og er næsti yfirmaður er yfirlæknir heilsugæslu við starfsstöðina.

Frábært tækifæri til að öðlast víðtæka reynslu með fjölbreyttu starfi heilsugæslu á landsbyggðinni.

Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir heilsugæslu-, sjúkrahúss-, bráða- og öldrunarþjónustu, auk þess að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almennar lækningar, heilsuvernd og leiðbeiningar til skjólstæðinga og aðstandenda

  • Almenn vaktþjónusta og bráðaþjónusta sem tengist heilsugæslunni á Selfossi

  • Virkur þáttakandi í uppbyggingu og framþróun heilsugæslu ásamt fræðslu og vísindastarfi á stöðugt stækkandi heilbrigðisstofnun

  • Þátttaka í verkefnum starfsstöðvar, þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og framþróun

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Hæfni í tjáningu í ræðu og riti

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

  • Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

  • Störfin veitast frá 1.september 2025 eða samkvæmt nánara samkomulagi.

  • Kennsluráð sérnámsins innan ÞÍH metur hæfi til formlegs sérnáms og getur einnig metið fyrri reynslu úr öðru starfsnámi.

  • Um er að ræða 5 ára sérnám þar sem þrjú ár fara fram á heilsugæslunni á Selfossi og tvö ár á sjúkrasviði LSH eða HSU í samráði við kennslustjóra sérnámsins.

  • Marklýsing sérnáms í heimilislækningum

https://throunarmidstod.is/library/Files/Markl%c3%bdsing%20%c3%ad%20heimilisl%c3%a6kningum%2004.10.2017.pdf

  • Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2025

Nánari upplýsingar veitir

Vignir Þór Bjarnason, vignir.th.bjarnason@hsu.is

Nanna Rún Sigurðardóttir, nanna.r.sigurdardottir@hsu.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérnámsstöður í heimilislækningum við heilsugæslu HSU í Hveragerði

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

16.07.2025

Umsóknarfrestur

12.08.2025