
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðsstjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.07.2025
Umsóknarfrestur
31.07.2025
Mannauðsstjóri
Landspítali auglýsir eftir öflugum einstaklingi með mikla reynslu af mannauðsmálum í starf mannauðsstjóra á rekstrar-og mannauðssvið. Mannauðsstjóri sinnir virkri þátttöku, ráðgjöf og stuðningi við stjórnendur og starfsfólk í öllum verkþáttum mannauðsmála, þ.e. í ráðningum, þjálfun og starfsþróun, endurgjöf, kjaramálum, samskiptum, heilsu og öryggi, í samræmi við stefnu Landspítala hverju sinni. Mannauðsstjóri tekur einnig þátt í miðlægum mannauðsverkefnum með rekstrar- og mannauðssviði spítalans.
Leitað er eftir kraftmiklum einstaklingi sem brennur fyrir málstað mannauðsmála og spítalans. Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi og reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika. Mannauðsstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra rekstrar- og mannauðssviðs og vinnur náið með öðrum mannauðsstjórum og stjórnendum Landspítala.
Í boði er frábær vinnuaðstaða, fyrsta flokks mötuneyti og stytting vinnuvikunnar. Starfshlutfall er 100% og upphafsdagur starfs samkomulag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ráðningar, öflun umsækjenda og framkvæmd ráðningaferla
Launasetning, gerð ráðningasamninga og innleiðing stofnana- og kjarasamninga
Vinnuvernd, heilsa og öryggi starfsfólks
Upplýsingagjöf og úrvinnsla samskiptamála
Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur
Innleiðing breytinga og verklags í mannauðsmálum sviðs
Teymisvinna og þátttaka í miðlægum verkefnum á sviði mannauðsmála með mannauðsdeild
Þátttaka í stefnumótun og samræmingu mannauðsmála Landspítala
Önnur verkefni frá framkvæmdastjóra rekstrar- og mannauðssviðs
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, viðbótarmenntun í mannauðsstjórnun eða sambærileg menntun skilyrði
Þekking og reynsla af mannauðsstjórnun skilyrði
Leiðtoga- og skipulagshæfni
Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Færni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðhorf, lausnamiðuð vinnubrögð og rík þjónustulund
Örugg og fagleg framkoma
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: íslenska 5/5 enska 4/5
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, mannauðsstjóri, mannauðsráðgjafi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2025
Nánari upplýsingar veitir
Gunnar Ágúst Beinteinsson, gunnarab@landspitali.is
Árný Ósk Árnadóttir, arnyo@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðsstjóri
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.07.2025
Umsóknarfrestur
31.07.2025