Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Matvæla­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Eftirlitsfulltrúar í sauðfjárslátrun á Húsavík

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.07.2025

Umsóknarfrestur

31.07.2025

Eftirlitsfulltrúar í sauðfjárslátrun á Húsavík

Viltu taka þátt í að standa vörð um matvælaöryggi og velferð dýra?

Matvælastofnun óskar eftir að ráða eftirlitsfulltrúa til starfa við heilbrigðiseftirlit í sauðfjárslátrun á komandi hausti. Um er að ræða tímabundin störf í u.þ.b. tvo mánuði í sláturhúsi Norðlenska á Húsavík. Athygli er vakin á að Matvælastofnun getur útvegað húsnæði yfir starfstímabilið.

Störfin henta vel þeim sem hafa þekkingu og reynslu af landbúnaðarstörfum en eftirlitsfulltrúar fá kennslu og þjálfun sem fer fram undir lok ágústmánaðar. Eftirlitsfulltrúar munu einnig eiga möguleika á að bæta við sig þjálfun varðandi heilbrigðiseftirlit í alifuglasláturhúsum.

Matvælastofnun (MAST) er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem stendur vörð um hagsmuni og heilsu manna, dýra og plantna og eykur þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Starfsumhverfið er fjölskylduvænt og áhersla lögð á starfsánægju og góð samskipti ásamt því að stuðla að öflugu og lifandi þekkingarsamfélagi. Gildin sem starfsfólk hefur að leiðarljósi eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI og TRAUST. Nánari upplýsingar er að finna áwww.mast.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Eftirlitsfulltrúi sinnir fyrst og fremst opinberu eftirliti með heilbrigðisskoðun á kjötskrokkum, dýravelferð og hollustuháttum. Eftirlitsfulltrúar starfa undir ábyrgð og handleiðslu eftirlitsdýralækna viðkomandi sláturhúsa.

Um dagvinnu er að ræða í september og október.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sláturhúsastörfum æskileg

  • Reynsla af umgengni við búfé æskileg

  • Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar

  • Nákvæmni, frumkvæði, fagleg vinnubrögð og sjálfstæði í starfi

  • Áhugi á matvælaöryggi og dýraheilbrigði

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Íslenskufærni A2 skv. samevrópska tungumálarammanum æskileg

  • Enskufærni B1 skv. samevrópska tungumálarammanum æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og stutt kynningarbréf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2025

Nánari upplýsingar veitir

Freydís Dana Sigurðardóttir, freydis.sigurdardottir@mast.is

Sími: 530-4800

Þjónustuaðili

Matvæla­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Eftirlitsfulltrúar í sauðfjárslátrun á Húsavík

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.07.2025

Umsóknarfrestur

31.07.2025