Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Húsnæðis- og mannvirkja­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur - Askur, mannvirkjarannsóknarsjóður

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.05.2025

Umsóknarfrestur

05.06.2025

Sérfræðingur - Askur, mannvirkjarannsóknarsjóður

Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á öfluga miðlun upplýsinga, árangursríkt samstarf við hagaðila og nýsköpun á byggingarmarkaði?

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu starfsfólki í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar til að stuðla að betri innleiðingu byggingarregluverks og veita hagaðilum mannvirkjageirans stuðning til að þeir nái árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Þetta er gert með því að stuðla markvisst að aukinni þekkingu og rannsóknum ásamt því að vinna að fræðslu og að viðhalda virku samtali við hagaðila. Teymið vinnur einnig að samræmingu byggingareftirlits og minni kolefnislosun á íslenskum byggingamarkaði.

Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.

HMS óskar eftir að ráða sérfræðing sem hefur umsjón með Aski, mannvirkjarannsóknarsjóði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með uppbyggingu og þróun á skipulagi og verkferlum Asks

  • Umsjón með reglulegum úthlutunum, þ.m.t. auglýsingum, kynningum og fyrirspurnum

  • Samningagerð og eftirfylgni með styrkþegum

  • Umsjón með markaðsstarfi Asks, m.a. greinarskrif, kynningar og tölfræði

  • Samskipti við ytri hagaðila

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á byggingasviði s.s. byggingafræði, tæknifræði, verkfræði eða arkitektúr er skilyrði

  • Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur

  • Reynsla í verkefnastjórnun og samningagerð er kostur

  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf

  • Gott vald á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkfræðingafélag Íslands hafa gert.

Um er að ræða fult starf og æskilegt er að umsækjendi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal fylgja með ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.

Sótt er um starfið á hagvangur.is

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Elín Þórólfsdóttir, elin.thorolfsdottir@hms.is

Guðrún Soffía Guðmundsdóttir, soffia.gudmundsdottir@hms.is

Þjónustuaðili

Húsnæðis- og mannvirkja­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur - Askur, mannvirkjarannsóknarsjóður

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.05.2025

Umsóknarfrestur

05.06.2025