Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í sjálfbærri mannvirkjagerð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.05.2025
Umsóknarfrestur
05.06.2025
Sérfræðingur í sjálfbærri mannvirkjagerð
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á öfluga miðlun upplýsinga, árangursríkt samstarf við hagaðila og nýsköpun á byggingarmarkaði?
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu starfsfólki í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar til að stuðla að betri innleiðingu byggingarregluverks og veita hagaðilum mannvirkjageirans stuðning til að þeir nái árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Þetta er gert með því að stuðla markvisst að aukinni þekkingu og rannsóknum ásamt því að vinna að fræðslu og að viðhalda virku samtali við hagaðila. Teymið vinnur einnig að samræmingu byggingareftirlits og minni kolefnislosun á íslenskum byggingamarkaði.
Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.
HMS óskar eftir að ráða sérfræðing í sjálfbærri mannvirkjagerð sem mun koma að verkefni fyrir Nordic Sustainable Construction, NSC.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í norrænu samstarfsverkefni og samskipti á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar.
Styðja við þróun vistvænnar mannvirkjagerðar innan starfsemi HMS
Frumkvæði og þróun á samskiptum og samstarfi við ólíka hagaðila byggingariðnaðarins í tengslum við vistvæna mannvirkjagerð
Fræðslu- og kynningarstörf á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar
Þátttaka í gerð leiðbeininga við regluverk á sviði vistvænnar mannvirkjagerðar
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á byggingasviði, s.s. byggingafræði, tæknifræði, verkfræði eða arkitektúr er skilyrði
Nám í sjálfbærni er kostur
Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur
Þekking og reynsla af lykilþáttum vistvænnar mannvirkjagerðar, t.d. í tengslum við lífsferilsgreiningar og hringrásarhagkerfið er kostur
Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
Gott vald á íslensku og ensku. Gott vald á norðurlandatungumáli er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkfræðingafélag Íslands hafa gert.
Um er að ræða fult starf og æskilegt er að umsækjendi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal fylgja með ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningum.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.
Sótt er um starfið á hagvangur.is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Elín Þórólfsdóttir, elin.thorolfsdottir@hms.is
Guðrún Soffía Guðmundsdóttir, soffia.gudmundsdottir@hms.is
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í sjálfbærri mannvirkjagerð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
23.05.2025
Umsóknarfrestur
05.06.2025