
Þjónustuaðili
Þjóðleikhúsið
Upplýsingar um starf
Starf
Búningaumsjón við búningadeild Þjóðleikhússins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
23.05.2025
Umsóknarfrestur
05.06.2025
Búningaumsjón við búningadeild Þjóðleikhússins
Laust er til umsóknar 70% starf í búningaumsjón við búningadeild Þjóðleikhússins
Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu og setur upp leiksýningar sem hrífa áhorfendur og skemmta, vekja til umhugsunar, endurspegla fjölbreytileika mannlífsins og veita innblástur. Þjóðleikhúsið er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfsfólk leggur metnað sinn í að skapa jarðveg fyrir nýsköpun og framþróun í sviðslistum og bjóða upp á framúrskarandi leiksýningar.
Óskað er eftir kraftmiklum og vandvirkum einstaklingi með brennandi ástríðu fyrir leikhúsi til starfa í búningadeild leikhússins.
Þjóðleikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður þar sem fjölbreyttur og samheldinn hópur starfar. Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og boðið er upp á hlunnindi svo sem samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.
Helstu verkefni og ábyrgð
Annast þvott og viðhald á búningum leikhússins á sýningartíma
Annast þvott og viðhald á búningum á æfingarferli fram að frumsýningu
Annast þvott og frágang á búningum eftir að sýningartíma lýkur. Þar er innifalið að yfirfara búningsherbergi leikara og taka búninga, skó og hatta sem tilheyra viðkomandi sýningu.
Vinna í búningasafni leikhússins
Aðstoð við framleiðslu búninga
Búningaþjónsta á sýningum
Önnur verkefni sem að deildarstjóri búningadeildar felur starfsmanni.
Hæfniskröfur
Menntaður fatatæknir, klæðskeri eða samsvarandi
Kunnátta í þvottahúsi
Kunnátta og reynsla í saumaskap
Sjálfstæð vinnubrögð
Sveigjanleiki
Viðkomandi þarf að vera röskur, úrræðagóður og lausnamiðaður og í góðu líkamlegu formi þar sem starfið krefst vinnu við ýmsar ólíkar aðstæður.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Sameykis.Umsækjandi þarf að geta hafið störf 19. ágúst 2025.
Sótt er um rafrænt í gegnum starfatorg.is.Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir því hvernig hann uppfyllir hæfnikröfur auglýsingar
afrit af prófskírteinum
upplýsingar um umsagnaraðila frá fyrri störfum
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Leikhúsið áskilur sér rétt til að ráða engan uppfylli enginn umsækjandi kröfur.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Berglind Einarsdóttir, buningar@leikhusid.is
Sími: 5851227

Þjónustuaðili
Þjóðleikhúsið
Upplýsingar um starf
Starf
Búningaumsjón við búningadeild Þjóðleikhússins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
23.05.2025
Umsóknarfrestur
05.06.2025