Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í handaskurðlækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.05.2025

Umsóknarfrestur

10.06.2025

Sérfræðilæknir í handaskurðlækningum

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í handaskurðlækningum. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi.

Handaskurðlækningateymið er hluti af bæklunarskurðdeild Landspítala og býður sérgreinin upp á líflegt og krefjandi starfsumhverfi og mikil tækifæri til starfsþróunar. Teymið vinnur náið með sjúkra- og iðjuþjálfun þar sem áhersla er lögð á góða þjónustu, virka teymisvinnu og stöðugar umbætur í þágu sjúklinga.

Leitað er eftir sérfræðilækni sem hefur áhuga á að vinna að krefjandi verkefnum, sem dæmi má nefna bráðatilvik, meðfæddar missmíðar og færnibætandi aðgerðir, í umhverfi þar sem fjölbreytni, metnaður og þverfagleg teymisvinna eru í fyrirrúmi með áherslu á umbótastarf og öryggi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining, meðferð og eftirfylgd sjúklinga með vandamál er tengjast sérgreininni

  • Þátttaka í göngudeildarþjónustu og samráðskvaðningum og öðrum þeim störfum sem yfirlæknir deildarinnar telur að eigi við

  • Þátttaka í bakvöktum sérgreinarinnar

  • Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækni

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í handaskurðlækningum

  • Almenn reynsla og þjálfun í handaskurðlækningum, sérstaklega tengd áverkum/ mjúkvefjum

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Reynsla í kennslu og vísindavinnu æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Skurðlæknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Starfsstöð er Landspítali og eftir atvikum önnur sjúkrastofnun sem yfirlæknir hefur sem starfsskyldu að manna.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfi.

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, læknir með lækningaleyfi

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Elías Þór Guðbrandsson, eliasthg@landspitali.is

Sími: 824-6001

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í handaskurðlækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.05.2025

Umsóknarfrestur

10.06.2025