
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
75%
Starf skráð
23.05.2025
Umsóknarfrestur
02.06.2025
Sálfræðingur í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands auglýsir eftir sálfræðingi í geðheilsuteymi fullorðinna á Vesturlandi. Um er að ræða 75% stöðu eða eftir nánara samkomulagi.
Starfsstöð er á Akranesi eða umsemjanleg á öðrum starfsstöðvum HVE.
Starfið felst í sálfræðimeðferð fullorðinna í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í samstarfi við aðrar stéttir innan teymisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
· Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri
· Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
· Fræðsla og stuðningur við einstaklinga og aðstandendur
· Þátttaka í uppbygging geðheilsuteymis
· Vinna í þverfaglegu teymi
· Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
· Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
· Starfsleyfi frá landlækni Íslands er skilyrði
· Reynsla og þekking af greiningu, meðferð og endurhæfingu vegna geðraskana
· Ökuréttindi
· Góð íslenskukunnátta er skilyrði
· Reynsla af teymisvinnu
· Framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleiki í starfi
· Frumkvæði, áhugi og metnaður til að ná árangri
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Ef engin umsókn er fullnægjandi áskilur HVE sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknum skulu fylgja leyfisbréf, ítarlegar starfsferilskrár, nöfn meðmælanda og persónulegt kynningarbréf.
Sótt er um á www.hve.is, og eða <www.starfatorg.is>
Starfshlutfall er 75%
Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2025
Nánari upplýsingar veitir
Íris Björg Jónsdóttir, iris.jonsdottir@hve.is
Sími: 432-1000
Sigurður Þór Sigursteinsson, sigurdur.t.sigursteinsson@hve.is

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
75%
Starf skráð
23.05.2025
Umsóknarfrestur
02.06.2025