Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Tæknimaður í ljósadeild Þjóðleikhússins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.05.2025

Umsóknarfrestur

02.06.2025

Tæknimaður í ljósadeild Þjóðleikhússins

Þjóðleikhúsið er lifandi og kraftmikið leikhús sem á brýnt erindi við fólkið í landinu og setur upp leiksýningar sem hrífa áhorfendur og skemmta, vekja til umhugsunar, endurspegla fjölbreytileika mannlífsins og veita innblástur. Þjóðleikhúsið er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfsfólk leggur metnað sinn í að skapa jarðveg fyrir nýsköpun og framþróun í sviðslistum og bjóða upp á framúrskarandi leiksýningar.

Óskað er eftir kraftmiklum einstaklingi með áhuga á starfsemi leikhúsa sem hefur metnað til að láta til sín taka og axla ábyrgð.

Þjóðleikhúsið er jafnlaunavottaður vinnustaður þar sem fjölbreyttur og samheldinn hópur starfar. Stofnunin er þátttakandi í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og boðið er upp á hlunnindi svo sem samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppsetning tækjabúnaðar

  • Forritun á ljósabúnaði

  • Viðhald á tækjum og búnaði Þjóðleikhússins

  • Lagnavinna tengd ljósatækni

  • Innstilling og frágangur tækja fyrir sýningar og viðburði

  • Almenn dagleg störf á ljósadeild Þjóðleikhúsins

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • A.m.k 5 ára reynsla í faginu innan leikhúss eða sambærilegrar stofnunar

  • Mikil kunnátta á leikhúsljósatækni og ljósastýringar tengdar leikhúsi og viðburðum

  • Mjög góð almenn tölvukunnátta

  • Jákvæðni, lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum

  • Menntun í rafvirkjun eða rafeindavirkjun er kostur

  • Góð íslensku- og/eða enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag tæknifólks hafa gert.

Um er að ræða 100% starf.Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.Umsóknarfrestur er til og með 2. júní 2025.Viðkomandi þarf helst að geta hafið störf 1. september 2025

Sótt er um rafrænt í gegnum starfatorg.is.Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir því hvernig hann uppfyllir hæfnikröfur auglýsingar

  • afrit af prófskírteinum

  • upplýsingar um umsagnaraðila frá fyrri störfum

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Leikhúsið áskilur sér rétt til að ráða engan uppfylli enginn umsækjandi kröfur.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.06.2025

Nánari upplýsingar veitir

Garðar Borgþórsson, gardar.borgthorsson@leikhusid.is

Þjónustuaðili

Þjóðleik­húsið

Upplýsingar um starf

Starf

Tæknimaður í ljósadeild Þjóðleikhússins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

23.05.2025

Umsóknarfrestur

02.06.2025